Össur á Möltu!

Hver fjármagnar ferð Össurar til Möltu? Hvernig dirfist honum að fara til Möltu og ræða við ráðamenn þar um mögulegan stuðning þeirra vegna mögulegrar aðildarumsókn Íslands í ESB.  Ég heimta að íslenska ríkið borgi ekki fyrir þessa ferð og skora á alþingismenn að taka þessa ferð upp á alþingi.

 

Með þessari ferð er Össur kominn langt fram úr öllu velsæmi og ætti að vera tekinn á teppið af þjóðinni. Alþingi er ekki búin að fjalla um þetta mál og er málið til umfjöllunar í utanríkisnefnd.  Hann lætur engan vita af þessari ferð og tilgang hennar. Þetta er einn mesti dónaskapur sem alþingismaður íslendinga hefur sýnt sinni þjóð og meðbræðrum á alþingi. 

 

Ef ekkert verður tekið á þessu máli, þá megum við íslendingar eiga von á fleiri ferðalögum Össurar og annarra trúboða af hans gerð til núverandi aðildarríkja ESB og betla um fylgi um aðildarumsókn sem ekki hefur enn verið samþykkt af alþingi né þjóðnni.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Loftur Altice Þorsteinsson

Mín krafa er, að á Alþingi komi fram tillaga um vantraust á Össuri, vegna framgöngu hans meðal annars á Möltu. Eins og þú rekur vel Eggert, þá getur hvorki þjóð né þing sætt sig við svona vinnubrögð.

Loftur Altice Þorsteinsson, 3.6.2009 kl. 20:43

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband