8.10.2017 | 23:16
VG "Vill auka gagnsæi" Ákall þóðfélags um aukna gagnsæi-þvílík hræsni
Var að horfa á herlegheitin í boði RUV. Gagnlegar umræður og allir vilja allt gott fyrir alla. Margt í þættinum voru endurtekningarfullyrðina og loforða, sem allir kjósendur eru búnir að heyra sl. 20 ár.
Það sem stakk mig var að, formaður VG, Kolbrún Jakopsdóttir, gat ekki svarað spurningu, Bjarna Benediktssonar, um aukningu um 70 milljarða króna tekjuaukningu öðru vísu en aö auranir gætu fengist með auka skatti á þau 10 % sem mestar hefðu tekjurnar í samfélaginu og aukningu á auðlegaðargjaldi, sem hún útskýrði ekki frekar.
Þetta er að mínu mati sú lélegasta órökstudda skýring sem ég hef nokkun tíma áður heyrt ( að vísu er það lygi hjá mér)
Katrín Jakobsdóttir brosti framan í okkur íslendinga, eða alla þá sem horfðu á þennan þátt, og sagði í lokaorðum sínum að það þyrfti aukið gagnsæi í íslenskum stjórnmálum( eða það var að vísu minn skilningur.)
En, hvar var þetta gagnsæi hennar, þá sem forustumaður í VG og sem var í Háttvirtri Ríkisstjórn okkar allra á Íslandi.
Hvar var gagnsæið hjá henni, þegar hún samþykkti leynd yfir skjölum sem snertu hrunið og aðgerðir VG í Ríkisstjórn og Samfylkingar.
Hvað er það hjá Alþingi sem ekki þolir 100 ára leynd?
Á meðan hún afléttir ekki leynd yfir þeim skjölum, sem hún sjálf stóð að að því að fela fyrir Almenningi í um rúmlegan mannsaldur, er ekki mikið mark á henni takandi.
Vill hækka skatta á þá auðugustu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Ég velti því fyrir mér hvernig fólki líður í hjartanu og samviskunni, þegar það segir ósatt, og trúir því jafnvel sjálft að það sé jafnvel í lagi svo lengi sem ekki kemst upp um það?
Það hlýtur að vera slæm tilfinning að segja ósatt. Hvort sem fólk er þvingað eða sjálfviljugt að segja almenningi ósatt um risastór þjóðfélagsmál.
M.b.kv.
Anna Sigríður Guðmundsdóttir (IP-tala skráð) 8.10.2017 kl. 23:56
Smá villa þarna. Formaður VG heitir Katrín Jakobsdóttir, ekki Kolbrún.
Jón Steinar Ragnarsson, 9.10.2017 kl. 02:27
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.