Bjarni Ben í Páfagarð

Alveg er ég viss um að þessi ferð Bjarna Ben sé að reyna að fá syndaaflausn á svikum sínum við sína íslensku þjóð-

Annað er yfirskyn og að öllu ónauðsynlegt.


mbl.is Bjarni á fund páfa
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Lagaleg óvissa

Þá hefur það komið skýrt fram hjá einum  höfunda skýrslunar sem vitnað hefur verið til á ALþingi  í umræðum um Orkupakka 3 síðustu daga. 

Miðflokkurinn má fá hrós fyrir að standa í lappirnar og óska eftir að þessi Orkupakki 3 fari aftur á byrjunarreit. Aftur á byrjunarreit til að fá VARANLEGAR undanþágur með þeim rökum að þessi tilskipun eigi ekki við Ísland þar sem við eru ekki tengd.

Framtíðarfólk okkar getur því síðar meir, ef aðstæður skapast með þeim hætti gert FRJÁLSAN samning við ESB / Bretland um raforkukaup frá Íslandi í gegnum sæstreng.


mbl.is Felur í sér lagalega óvissu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvaða áhættu er verið að taka?

Orð  Þór­dísar Kol­brúnar Gylfa­dótt­ur Reyk­fjörð

„Hverju var hægt að bjarga? Hver var raun­veru­leg staða? Hvaða áhættu eru stjórn­mála­menn að taka fyr­ir hönd skatt­greiðanda? Þegar öll gögn sýna að það sé mjög lang­sótt og lík­lega ekki far­sælt þá þar með ger­irðu það ekki.“

 

Mér er spurn hvaða áhættu Alþingismenn munu taka fyrir hönd almennings með  því að hafna ORKUPAKKA 3 ?


mbl.is „Ísland er komið á kortið“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Orkupakki 3

"eða þenn­an þriðja orkupakka, sem er tækni­legt fram­hald af fyrsta og öðrum og fel­ur ekki í sér nein­ar grund­vall­ar breyt­ing­ar af því fyr­ir­komu­lagi sem við höf­um í dag,“ svaraði Þór­dís Kol­brún."

Er ekki tími til kominn að Háttvirt Ríkisstjórn segi okkur nákvæmlega hvað sé í þessum ORKUPAKKA 3, sem gagnast okkur í komandi framtíð, ef við heimilum ekki RAFSTRENG til Evrópu.

Ef það er ekkert í PAKKANUM sem skiptir okkur máli Í GRUNDVALLAR ATRIÐUM- því á þá að leggja hann fram til Alþingis til samþykktar?


mbl.is Vill vísa orkupakkanum til þjóðarinnar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Án samþykkis

Þetta er frábært - Þá er eftir að setja í ÖLL LÖG í okkar vestræna heims svipað ákvæði um þvinguð Hjónabönd ungra kvenna- ( allt niður í 10 ár) sem tiðkast í sumum trúarbrögðum.

Sumt fólk sem hefur komið til vestrænna samfélaga hafa fengið að viðhalda siðum sínum og gifta barnungar stúlkur án síns samþykkis.

Svoleiðis giftingamál þarf að taka á í íslenskri löggjöf, þá sérstkaklega í ljósi fjölgandi móttöku innflytjanda til okkars samfélags


mbl.is Kynlíf án samþykkis skilgreinist sem nauðgun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Siðanefnd Alþingis

Einhver. ?  Er hægt að fá yfirlit yfir "hverskonar mál" siðanefnd Alþingis getur fjallað um?

Það væri gott ef mál er varðar brotin og svikin loforð þingmanna sé éitt af þessum málum


mbl.is Siðareglurnar nái varla yfir mál Ágústs
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Forseti alþingis

Hvernig væri að forseti Alþingis setti sjálfan sig í nokkurra mánaða leyfi frá störfum, á meðan Siðanefnd Alþingis færi yfir brotin loforð hans og framferði hans gangnvart þegnum landsins undan farin ár. 

Það hlítur að lúta einhverjum siðaeglum að lúga og svíkja margsinnis gefin loforð til kjósenda sinna- eða er það aukaatriði hjá Siðanefnd Alþingis.

Það má lýta á þess færslu sem beiðni um skoðun.


mbl.is Hefur ekki frumkvæðisskyldu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Klúður stjórnvalda 2009-2010

Nú halda kröfuhafar veizlu og hlæja af af okkur islendingum. 


1000 faldur ágóði eiginfjármagns sem lagt var til, eða meira?


Það er þó bót í máli að íslendingar hafa enn skattlagningarvaldið og geta því náð stórum hluta  þessa ofurgróða til baka í sköttum þ.e.a.s. ef það er til einhver manndómur  hjá þeim er starfa sem Alþingismenn okkar. 
Alþingismenn geta sýnt það í verki að þeir séu ekki gungur og hafi það áræði til að ná í þennan skatt og sjá um leið að þessi ofurgróði fari ekki úr landi.

Stór fjöldi fjölskyldna hefur engar bætur enn fengið vegna athafna þessarra kröfuhafa og misst allt sitt vegna undirgefni Ríkisstjórnar okkar á árunum 2009 og 2010 við þessa kröfuhafa, Vogunarsjóði sem hafa ekki nein nöfn á bak við sig.(Líklega ekki hæfir til að eiga banka)

Enn er til ráð og tími sem HIÐ HÁA ALÞINGI hefur til að bæta úr mistökum sínum á þessum samningum.


mbl.is Íslenska ríkið farið úr hluthafahópnum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gjaldþrot

Það er greinilegt að útgerðin er ekki að gera það gott allstaðar


mbl.is Tvær útgerðir teknar til gjaldþrotaskipta
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Borgarstjóri skapar fordæmi.

Lokasetning fréttarinnar hljóðar eftirfarandi:  Þá er samþykkt að fallið verði frá grennd­arkynn­ingu „þar sem breyt­ing á deili­skipu­lagi varðar ekki hags­muni annarra en um­sækj­anda.“

Hananú!

Það eru komin ný vinnubrögð hjá Reykjavíkurborg sem margir geta fagnað. Menn fara nú að breyta og stækkka lóðir sínar. Teikna upp breytingatillögu við gildandi deiliskipulag og fá allt samþykk án nokkura athugasemda nágranna, þar sem þeim kemur málið ekkert við.

Ekki einu sinni þeim sem missa bílastæðin sín.

Eigum við ekki að fagna þessu fordæmi sem Borgarstjórninn í Reykjavík hefur sett.

Lífið verður miklu auðveldara þegar engir fá að skipta sér að sjálfsögðum hlut eins og smá breyting á deiliskipulagi.

 


mbl.is Borgarstjóri stækkar garðinn sinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband