2.9.2019 | 18:38
Svik við norskan almenning
Nú með þessari samþykkt hefur norskur almenningur fengið það staðfest að íslensk Ríkisstjórn stendur ekki með þeim.
Það hefur verið alkunna að mikil andstaða hefur verið um þennan orkupakka 3 í Noregi og meirihluti almennings noregs honum andvíkur. Taka á þessa samþykkt Norska þinsins fyrir hjá stjórnlagadómstól landsins í september og bindur norskur almenningur vonir um að samþykkt þingsins hafi ekki staðist norska stjórnarskrá.
Sömu sögu má segja um mikla andstöðu almenning á Íslandi sem hefur verið hunsuð.
Það er stórfurðulegt að ekki var unnt að bíða með samþykki Ríkistjórnar íslands á orkupakka 3 fram yfir þá þann tíma, sem úr því væri skorðið af norska stjórnlagadómstólnum um ólögmæti á samþykkt norka þingsin, þá sérstaklega í ljósi orða og staðhæfinga Ríkisstjórnar þess eðlis að þessi Orkupakki nr. 3 skiptir okkur engu máli.
Hvað lá á að samþykkja, vil ég spyrja.
Norskir miðlar greina frá samþykkt orkupakkans | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.